Vígsla Flugsafnsins

Öllum félagsmönnum SFA er boðið að vera viðstaddir vígslu nýs húsnæðis Flugsafns Íslands, Akureyrarflugvelli laugardaginn 3 nóvember klukkan 14.

Léttar veitingar í boði og velkomið að taka gest með.
Með kveðju frá Stjórn Flugsafns Íslands.

Melaslútt laugardagskvöldið 13 okt. kl. 20.00

Þá er að koma að því.. Melaslútt laugardagskvöldið 13 okt. kl. 20.00. Boðið verður upp á snittur og öl.
Og nú er bara að mæta og eiga góða kvöldstund saman með öðrum "flugdellungum" hvort sem þeir/þær stunda er vélflug svifflug, módelflug eða bara alvarlega sýktir af delluni.
Stefnt er að því að hafa fly-in á Melunum um daginn og gera sér og öðrum eitthvað til skemmtunar, hveitipokakast ofl og náttúrulega vöfflur á eftir. Spáð er suðvestan átt og ágætis veðri þannig að líklega förum við með TF-SBT inn á Mela og fljúgum honum á laugardaginn, ég reikna með að Blanik sláist með í hópin líka.

7 Október - Samantekt

Í dag tókum við saman svifflugurnar og gengum frá skýlinu, Einar og Jón Magg flugu TF-SBT inn á Akureyri eftir flugtog sem Eyjólfur sá um. Vélin verður inni á flugsafni í nokkrar vikur. Ef menn vilja flúga þá er það möguleiki, bara hafa samband. Ætlunin er að fljúga á næstu dögum ef veður lofar. Kærar þakkir fyrir hjálpina Jón, Einar, Eiríkur, Þórður, Sigtryggur, og Eyjólfur redduðu málunum.

1 Október - Auglýsingar og nýr vefur !

Jæja eftir 5 ár sem vefstjóri þá ætla ég að taka mér smá laun fyrir verkið, og launin eru að setja í smátíma auglýsingu um leigu á orlofsíbúð á Akureyri á forsíðu vefsins. Að sjálfsögðu erum við að leita að styrktaraðila fyrir vefinn. Vonandi er það engum á móti skapi. En jæja hér eru smá fréttit um vefinn, Vodafone er búið að redda okkur gagnagrunnstengingu til viðbótar við vefinn okkar og ég er að vinna í að gera vefinn gagnvirkann og gagnagrunnstengdann þannig að þeir sem vilja geta fengið aðgang að því að setja inn fréttir eða umræður. Hér er hægt að skoða hönnuna á nýju síðunni allar ábendingar vel þegnar. takk fyrir að líta inn, kveðja Sigtryggur S.

15 september - Baby brotið

Sorgarfréttir, Grunau Baby brotlenti á lendingarkeppninni og þarfnast umtalsverðra viðgerða eftir ! Við erum viss um að vélin fljúgi aftur en það gæti tekið töluverðan tíma þar sem viðgerðin verður líklega 1000 til 1500 tíma vinna. Ef einhver hefur nokkur hundruð tíma lausa þá má sá hinn sami gjarnan vera í sambandi við félagið. En í alvöru þá erum við að leita að aðila til að gera við TF-SDA fyrir ásættanlegt verð, hugsanlega verður hún þá flutt úr landi til viðgerðar. Ef einhver vill styrkja viðgerðina á vélinni þá hafið samband við félagið, félags-síminn er 821-1331.

12 september - Vídeo Gaga

Ef þig vantar að vita hvernig lendingarkeppnin er þá skoðið þetta myndband 36 Mb en vistað á Íslandi, ætti að vera frítt download. Einnig á YouTube

10 september - Lendingarkeppni næsta laugardag 15 sept

Jæja þá er komið að því, lendingarkeppni Svifflugfélags Akureyrar verður haldin 15 september næstkomandi og hefst keppnin stundvíslega klukkan 12. Veðurspáin hljómar upp á ágætis veður en það verður líklega norðanátt þannig að það gæti orðið svolítið kalt, mætið því með lúffur og kósakkahúfur.
Keppt verður á Grunau Baby og Ka-8 og því verður þetta svolítið tilraunakennd keppni með örlítið breyttum keppnisreglum.
Vinsamlega tilkynnið þáttöku með því að senda póst á svifflug@gmail.com eða hringja í félagssímann 821-1331.

Að vanda verður veisla um kvöldið og er stefnt á að hafa paellu eins og í fyrra þar sem hún mæltist mjög vel fyrir.

10 september - Spilið ekki svo aumt eftir allt !

Tækjahvíslarinn Þórður tók spilið í sálfræðimeðferð um helgina og náði að auka kraftinn til muna þannig að nú gengur mun betur að spila TF-SBT á loft. Náðust allt að 1700 feta flugtök með tveimur í vélinni sem verður að teljast góð bæting þar sem yfirleitt vorum við að ná 1200 feta flugtökum áður.
Takk Þórður !

7-9 september - Bylgjuflug

Í dag og í gær hafa verið ágætis skilyrði til svifflugs, í gær fór Sigtryggur í 12.000 feta hæð og í dag náðust nokkur löng flug eftir endilöngum fyrðinum.

Lendingarkeppni

Verður haldin næsta laugardag 15 september. Veisla verður haldin um kvöldið og allar líkur á að Paellu veislan frá í fyrra verði endurtekin !

3 September - VMA í heimsókn - Spurningarkeppni.

VMA kom með fulla rútu af nýnemum til okkar í morgun og fengu þeir að skoða aðstöðu félagsins og fengu stutta kynningu um Svifflugfélagið, Módelfélagið og Flugskólann.
Við munum endurtaka kynninguna alla næstu daga fram á fimmtudag.
Við viljum bjóða öllum nýnemum VMA í stutta spurningarkeppni þar sem þeir hafa möguleika á að vinna kynningarflug og DVD disk með kynningarefni um svifflug. Smellið hér til að taka þátt !

30 Ágúst - Lendingarkeppni frestað.

Vegna skoðunarmála þurfum við að fresta lendingarkeppninni sem halda átti 1 september, nánar auglýst síðar, líklega vitum við stöðuna á morgun.

15 Ágúst - Lendingarkeppni Baby eða Ka-8 ??.

Komið hefur upp tillaga um að breyta fyrirkomulagi lendingarkeppninnar
skoðaðu það nánar hér og gefðu þína skoðun á málinu.

Svo vil ég benda á að allir sem vilja geta stungið upp á nýjum umræðuefnum á svifflug grúppuni og um að gera að nýta sér það.

2 Ágúst - Nýjustu græjurnar

Þetta eru unglingarnir í flotanum, PW-5 10 ára og Grob Twin III SL 15 ára.
Mynd af TF-SBN og TF-SBT á Melgerðismelum.

25 Júlí - Svifflugnámskeið 2007.

Athugið að vegna mistaka hjá auglýsanda þá verður námskeiðið fært til 5 ágúst og verður til 19 ágúst en athugið að samt sem áður verður æfing í kvöld og um næstu helgi og allir velkomnir að mæta eins og vanalega.
Smellið hér fyrir nánari lýsingu

18 Júlí - Svifflugnámskeið 2007.

Svifflugnámskeið verður haldið á Melgerðismelum frá 25 júlí til 8 ágúst, kennt verður frá 18 til 22 á virkum dögum og frá 13 til 19 um helgar. Kennt verður á nýja tveggja sæta svifflugu félagsins. Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að skrá sig í síma 8211331 eða með tölvupósti á svifflug (hjá) gmail.is
Smellið hér fyrir nánari lýsingu

18 Júlí - Nýtt netfang og umræðusvæði fyrir félagið.

Stofnað hefur verið nýtt netfang fyrir félagið sem er svifflug(hjá)gmail.com. Einnig hefur umræðuhópur verið stofnaður sem hægt er að skrá sig í hérna:
Google Groups
Gerðust áskrifandi að hópnum Svifflug
Email:
Skoða grúppuna

22 Júní - Flughelgin hefst á morgun.

Sérstaklega verður haldið upp á 70 ára afmæli Svifflugfélagsins og félagsmenn hvattir til að mæta. Að því tilefni verður hluta af flota félagsins sérstaklega stillt upp eftir kaupári og þannig sýnt hver þróunin hefur verið í gegnum árin, vélarnar eru:
1937 - Grunau 9
1967 - Ka-8
1997 - PW-5
2007 - Twin III SL

19 Júní - Tjón á TF-SBT.

Flugatvik varð á Melgerðismelum í dag þar sem TF-SBT missti propp í flugtaki. Ekki er vitað um orsök þessa atviks að svo stöddu en ljóst er að þetta er mikið tjón fjárhagslega og mórallega fyrir félagið.

Möguleg geymslulausn á TF-SBT.

Hér er ein hugmynd af útfærslu á hvernig TF-SBT verður geymd ef við notum skýli inn á Akureyri.

18 Júní - Flugöryggi á Akureyrarflugvelli.

Fundur verður haldinn á Akureyrarflugvelli um umgengisreglur á vellinum og réttindi til aðgangs. Allir sem ætla sér að fara um svæðið verða að fara á slíkt námskeið og hvet ég alla félagsmenn til að mæta á námskeiðið. Tíminn er kl 20:00, ´mánudaginn 18 júní og staðsetningin er fundarherbergi 2 hæð á Akureyrarflugvelli. Þeir sem ekki geta mætt á þetta ákveðna námskeið látið formanninn Sigtrygg vita því að Flugstoðir hafa verið mjög jákvæð með að halda fleyri námskeið fyrir þá sem þurfa en best er náttúrulega að ná sem flestum í einu á hvert námskeið.

16 Júní - TF-SBT flýgur.

Nýja vélin fór fyrstu flugin á fimmtudagskvöldið og gekk mjög vel, farin voru þrjú flugtog og tvö flug með mótor vélarinnar. Í dag voru farin nokkur flug í flugtogi og gekk mjög vel. Einnig prófuðum við vélina í tveimur flugum af spili og það tókst ágætlega, einn flugmaður var í vélinni uþb. 90 kíló + bensín 30 kíló. Fyrra flugið náði 1100 fetum og það seinna 1400 fetum en þá vorum við búnir að átta okkur betur á hvað þyrfti til að koma vélinni á loft almennilega, spilið þarf að vera í algjörum botni alla leið og ég held að BT þurfi ekki að hafa áhyggjur af of miklum hraða í spilstarti því hámarkshraðinn í spilstarti er 140 km en fyrra vlugið var hraðinn mest 110 km og allt niður í 80 km hraðinn var betri í seinna fluginu.. Við höldum okkur inn á Melgerðismelum þar til aðgangsnámskeiðið á mánudaginn hefur farið fram og verður líklega flogið öll kvöld næstu vikur.

16 Júní - Viðgerðir, viðgerðir, viðgerðir.

Mikil vinna hefur verið unnið undanfarið fyrir félagið, og hér nefni ég þá helstu til sögunar sem hafa lagt sig sérstaklega fram:
- Upptekt á bremsum og lagfæringar á olíuleku á spili, Þórður og Jón Magg
- Sráningarvinna og merkingar á TF-SBT - Jónas, Sigtryggur, Einar
- Súzuki hefur verið sérstaklega lagfærður til notkunar í vírdrátt, Þórður
-

1 Júní - Jólasveinninn kemur í kvöld.

Twin III SL er væntanleg kl ca 21 í kvöld á Akureyrarvöll, Jónas og Þórður eru að ferja hana með bíl norður.

31 Maí - Myndir Jónasar frá USA

.

15 Maí - Kennsluefni um flug á flugtaks svifflugum

Hér er samantekt á þeim skjölum sem við höfum fengið um flug á nýju vélinni:

Hvernig á að fljúga Twin III SL
Almenn kennslubók um flug á sjálfræsandi svifflugum
Neyðar tékklistar á Twin III SL
Almennir tékklistar á Twin III SL
Rennigildi á Twin III SL
Tékklistar Twin III SL
Rafmagnsrofar Twin III SL
Viktarreiknir (í pundum, einhver lagi plís) Twin III SL
.

9 Maí - Kvöldvaka hjá formanninum föstudagskvöld 11 maí.

Jæja félagar jafnt sem aðrir áhugamenn eru boðnir til kvöldvöku næsta föstudagskvöld hjá formanni Svifflugfélagsins Sigtryggi að Helgamagrastræti 30 frá klukkan 21:30 til ?. Allir velkomnir og eini tilgangurinn er að hittast og ræða málin td. nýju vélina, slúðrið og starfsemina á komandi sumri og náttúrulega bara hvað sem er, félagssöngvar vonandi og allur pakkinn, einhverjar myndir og video upptökur eru til frá USA ferðinni sem verða sýndar og ef menn vilja þá er til ýmislegt annað spennandi efni.. Ætlast er til að menn mæti með eigin veitingar.

8 Maí - Myndir frá USA

Jæja, heill Grob Twin III SL hefur verið keyptur af félaginu og er nú kominn tvær dagleiðir áleiðis til landsins og uppskipun verður 24 maí. Sigtryggur, Jónas og Þórður fóru til Norður Ameríku til að prútta, skoða, sparka í dekk og ganga frá kaupum og flutningi og niðurstaða ferðarinnar er sú að vélin var keypt. Þetta eintak er mjög vel við haldið en eina sem hægt er að setja út á er að gelcoatið er með litlum rispum en það er víst einkenni þessarar framleiðslu á þessum árum frá Grob. Ferðin sóttist ágætlega en nokkuð stress var á farmönnum þar sem upprunarlegar tímaáætlanir gengu ekki eftir en á endanum náðist að klára allt sem til stóð að gera. Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni. .

12 Apríl 2007 - Kynningarfundur laugardaginn 14 apríl.

Rannsóknarnefnd flugslysa og Flugöryggissvið Flugmálastjórnar boðar til fundar á laugardagskvöldið 14 apríl klukkan 18.
Fundarstaður er hjá Flugskóla Akureyrar, Akureyrarflugvelli.
Fram fer kynning á starfseminni og farið yfir reglugerðir, sjálfur veit ég ekki meir en eflaust áhugavert að mæta og kynna sér þetta. Mér skilst að vélflugmönnum, svifflugmönnum og fisflugmönnum sé öllum boðið (þeim sem næst í skottið á) og aðgangur er ókeypis.
Kristján Víkings ætlar síðan eftir fundinn að bjóða upp á veitingar og það ábyggilega áfengar !

Þannig að mætum og lærum eitthvað um reglugerðir og eyðum því síðan aftur út seinna um kvöldið með smá öli !

11 Apríl 2007 - Einar á ekki afmæli í dag.

Formaðurinn sendi afmæliskveðjur á Einar Björnsson í fjölpósti til félagsmanna í dag en hann á víst ekki afmæli fyrr en eftir mánuð, hann er sem sagt yngri en ég hélt, til hamingju með það Einar.

9 Apríl 2007 - Svifflugfélag Akureyrar 70 ára í dag.

Í tilefni dagsins tóku félagsmenn sig til og flugu frá Akureyrarvelli. Veðurskilyrði voru ákjósanleg og flugu Sigtryggur Sigtryggsson og Einar Björnsson sitt hvort flugið upp á rúman klukkutíma hvort.

Svifflugfélag Akureyrar var stofnað 9 apríl 1937 og sama ár eignaðist félagið sitt fyrsta flugtæki sem var rennifluga af gerðinni Grunau-9. Hún var einsæta og var skotið á loft með teigju og nemendur þurftu því að fljúga öll sín flug einir eftir leiðsögn frá kennara á jörðu niðri. Árið 1946 eignaðist SFA tveggja sæta svifflugu sem kom frá Ameríska hernum og var hönnuð var til að þjálfa herflugmenn og þá var í fyrsta sinn hægt að senda kennara með flugnemunum. Flugfloti félagsins hefur verið endurnýjaður reglulega eftir þetta og eldri vélar félagsins hafa fengið heiðurssess í Flugsafninu á Akureyri á Akureyrarflugvelli og er stefnt á að halda sérstaka afmælissýningu í sumar í nýju skýli Flugsafnsins sem nú er að rísa. Á 70 ára sögu svifflugfélagsins hafa ótal flugmenn hafið sig í fyrsta sinn til skýjanna hjá félaginu og eru þar á meðal margir af landsins þekktustu flugstjórum. Akureyri hefur verið nefnd vagga flugsins á Íslandi enda rekur Icelandair rætur sínar til stofnunar Flugfélags Akureyrar sem var stofnað um sumarið 1937 og á því einnig 70 ára afmæli í ár en þar sem nokkrir mánuðir eru á milli getur Svifflugfélagið því litið á á Icelandair sem litla bróðir.

Svifflugfélagið er að fjárfesta í nýrri svifflugu í sumar og má því eiga von á að afmælisárið verði ánægjulegt og viljum við hvetja alla sem áhuga hafa á að kynna sér íþróttina að hafa samband við félagið. Félagssíminn er 821-1331 og netfang formanns er sigtryggur(Hjá)t.is

9 Apríl 2007 - Ný sviffluga.

Það verður farið að skoða vélina sem við ætlum okkur að kaupa í USA þann 19 apríl og ef allt gengur eftir þá mun hún verða sett í skip til Íslands sem kemur til hafnar 25 maí.

8 Mars 2007 - Félagsfundur sunnudag 11 mars.

Fundur verður haldinn að Glerárgötu 30, sunnudaginn 11 mars klukkan 13-15 og eru helstu umræðuefni þau að samningi við BB hefur verið rift og samið um endurgreiðslu á okkar upphaflegu greiðslu til hans. Einnig hefur verið gerð viljayfirlýsing um kaup á annari Twin III SL frá USA og verður leitað eftir samþykki félagsmanna um þau kaup. Sú vél er mjög vel tækjum búin meðal annars góður trailer, transponder, 2 fallhlífar, radío m. intercom, slatti af varahlutum, hjálpartæki til samsetningar og flutninga á jörðu niðri ofl. Verðið er nokkuð hærra en þó vel þess virði ef miðað er við allan aukabúnaðinn og að hér er um ótjónaða vél að ræða.
Annað mál sem við þurfum að fara yfir er að fá skoðanir félagsmanna um hvað eigi að gera að tilefni 70 ára afmæli félagsins sem er nú í ár.

Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna, stjórnin.

Sjá einnig gamla fréttahauginn:

Fréttir 2007
Fréttir 2006
Fréttir 2005
Fréttir 2004
Fréttir 2003
Fréttir 2002
Fréttir 2001
Fréttir 2000
Fréttir 1998
Fréttir 1997