Blue Flower

Áramótafagnaður VFA 30 des

 

Hinn árlegi áramótafagnaður VFA verður haldinn þann 30 des..nákvæmlega ca 20.00.. Að vanda verður eitthvað að narta í og guðsveigar með á mjög hóflegu gjaldi..heyrst Hefur að Aggi Agg mæti með sinn rómaða cocktail...aðalatriðið samt að flestir mæti með góða skapið..og sem áður allt flugdellufólk velkomið..alveg sama Hvar það er statt í dellinni.. Fyrstir koma..fyrstir fá ..mest :) 

Stjórnin

þróttabandalag Akureyrar heldur upp á 70 ára afmæli sitt í dag og að því tilefni verður Svifflugfélag Akureyrar með kynningu í Íþróttahöllinni. Ég hvet alla til að koma í heimsókn.

 

  • IBA1
  • IBA10
  • IBA2
  • IBA3
  • IBA4
  • IBA5
  • IBA6
  • IBA7
  • IBA8
  • IBA9
  • iba_homepage

Simple Image Gallery Extended

Ársskoðun á Dímónunni er lokið og viðhaldsdeildin hefur staðið sig rosalega vel eins og reyndar þeir kappar gera alltaf. 

Nú líður að páskum og veðrið undanfarna daga hefur verið algjörlega dásamlegt þannig að það er farið að hríslast flug fiðringur um marga. 

Því ætlum við ef veður leyfir að setja saman Dímónuna næsta laugardag 28 Mars. 

Félagsmenn eru hvattir til að mæta og aðstoða við samsetninguna og náttúrulega eiga menn að setja upp sólgleraugun og taka flug.

Þeir sem eru með tékk eru hvattir til að taka sín fyrstu flug ársins og jafnframt minni ég á að fara varlega og ef langt er síðan síðasta flug var þá skulið þið grípa með ykkur einn af kennurum félagsins Braga, Baldur eða Zippo eða bara einhvern sem er current, gaman saman.

TF-SBP hefur verið sett saman og búið að fljúga 3 flug í dag. 
Vélin er geymd úti amk. fram á næsta mánudag en spáin er ágæt þannig að hún ætti að þola það.

Eyjólfur Guðmundsson flugrektor tók tékk á vélina í dag þannig að nýr flugmaður hefur bæst í hópinn sem er mjög gott.

En sem sagt, vélin er klár og aðgengileg þeim sem hafa réttindi til að fljúga henni,

Aðalfundur Svifflugfélags Akureyrar verður haldinn miðvikudaginn 1 apríl klukkan 20 í Grásteini á Akureyrarflugvelli.

Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundastörf. 

Kynnt verður nýtt kennslufyrirkomulag sem er byggt á samstarfi við félaga okkar í Svifflugfélagi Íslands og farið yfir stöðu félagsins og framtíðarstefna rædd.

Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta. 

 

Ath.

Þar sem dagurinn eftir 1 apríl er frídagur þá er velkomið að taka með sér "nesti" til að eiga eftir að fundarstörfum líkur.

Kveðja Stjórnin.