Advertisement
Super Dimona HK-36 TC
Skrifað af Administrator   
fimmtudagur, 26 apríl 2012

Kæru félagar.

Svifflugfélagið er að ganga frá kaupum á nýrri mótorsvifflugu og verður hún komin til landsins í maí.

  Super Dímona Svifflugfélags Akureyrar (bráðum)
smellið fyrir fleiri myndir

Á meðan þið bíðið þá vil ég benda ykkur á að byrja að lesa leiðbeiningarnar.

http://www.diamond-air.at/fileadmin/uploads/files/after_sales_support/HK36_Series/Airplane_Flight_Manual/Basic_Manual/30110e-r2-HK36TC-AFM.pdf 

http://www.diamond-air.at/fileadmin/uploads/files/after_sales_support/HK36_Series/Airplane_Maintenance_Manual/Basic_Manual/30221-r10-HK36-AMM.pdf

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 26 apríl 2012 )
 
Vélakaup - Fundur á laugardag
Skrifað af Administrator   
föstudagur, 20 apríl 2012

Laugardaginn 21 apríl verður haldinn fundur í skýli félagsins Grásteini þar sem rætt verður um möguleg vélarkaup félagsins og framtíðarstefnu. Áríðandi er að sem flestir mæti þannig að hægt verði að ræða málin og allir séu samstíga.

 Fundurinn hefst klukkan 14 og má reikna með að hann verði til kl 16.

 Bestu kveðjur. Stjórnin.

 
Fundur um möguleg mótorsvifflugukaup
Skrifað af Administrator   
þriðjudagur, 17 apríl 2012
Félagsfundur um mögulega kosti á kaupum á mótorsvifflugu verður haldinn í húsi Landsvirkjunar, Glerárgötu 30 gengið inn bakatil í dag þriðjudaginn 17 apríl klukkan 18.
Sigtryggur og Kristján Sveinbjörns voru í Evrópu um helgina að skoða mögulega kosti í stöðunni og verða niðurstöður úr þeirri ferð kynntar. 
Hér eru hlekkir á myndasöfn úr ferðinni.  

Fleiri myndir frá Hollandi
Sjáumst vonandi sem flest.
Bestu kveðjur.
Sigtryggur Sigtryggsson. 
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 17 apríl 2012 )
 
Svifflugfélagið 75 ára
Skrifað af Administrator   
fimmtudagur, 12 apríl 2012

 

Kökudagur hjá SFA

Til hamingju kæru félagar, það eru mörg fórnfús handtökin sem hafa gert þennan áfanga að veruleika. SFA lengi lifi ! 

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 12 apríl 2012 )
 
Svifflugur á Íslandi samantekt frá Leifi Magnússyni
Skrifað af Administrator   
mánudagur, 09 apríl 2012

Leifur Magnússon hefur tekið saman sögu allra sviffluga á Íslandi og ég tel það vel við hæfi að birta þessa fyrstu útgáfu í dag.

Þetta er öflugt og þarft framtak hjá Leifi, skjalið er upp á 65 síður og þarna höfum við loksins samantekt á svifflugflota Íslands.  

Hér er hlekkur að ritinu en við tökum fram að þetta er fyrsta útgáfa og Leifur er opinn fyrir leiðréttingum ef þörf er á.

Leifur hefur einnig tekið saman samantektir yfir svifflugur og úrslit úr Íslandsmeistarakeppnum í Svifflugi og eru þær upplýsingar væntanlegar á vefinn fljótlega. 

 Njótið vel.

https://docs.google.com/open?id=0ByDNCfndQnU-cFFrLVcwRjNRSmF4d04yMTdnUzJzUQ

 Kveðja. Sigtryggur.

Síðast uppfært ( mánudagur, 09 apríl 2012 )
 
Afmælisveisla SFA annar í páskum
Skrifað af Administrator   
sunnudagur, 08 apríl 2012
Svifflugfélag Akureyrar verður 75 ára á morgun 9 apríl og af því tilefni er öllum vinum og velunnurum félagsins boðið í kaffi á Flugsafni Íslands á milli klukkan 3 og 5.  Allir hjartanlega velkomnir.
 
Skírdagskvöld - frumsýning myndbanda frá Melum
Skrifað af Administrator   
miðvikudagur, 04 apríl 2012

Á fimmtudagskvöldið ætlar Bragi Snædal að frumsýna myndbönd úr starfsemi flugklúbbana frá liðnum árum.Myndböndin eru flest tekin af Húni Snædal og Kristjáni Víkingssyni á gamlar 8 mm filmur en hefur núna verið komið yfir á mynddiska. Þarna er eflaust um fágætar perlur að ræða og fróðlegt efni í alla staði. Myndirnar hafa verið teknar jafnt úr svifflugi og vélflugi en ekki hvað sýst úr módelfluginu og gat Bragi þess að módelmenn ættu ekki hvað sýst eftir að hafa gaman af þessu. Myndasýningin hefst kl 20:00 í húsnæði Flugskóla Akureyrar. Mjöður verður látinn af hendi á kostnaðarverði (ca 300 kr) þannig að mönnum er bent á að koma með reiðufé. Vonumst til að sjá sem flesta.

Við minnum einnig á að súpufundur SFA er í dag miðvikudag í Græna Hattinum kl 12. 

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 04 apríl 2012 )
 
Svifflugfélag Akureyrar 75 ára !
Skrifað af Administrator   
föstudagur, 30 mars 2012

Þann 9 apríl næstkomandi verður Svifflugfélag Akureyrar 75 ára. Að því tilefni viljum við bjóða öllum vinum og velunnurum félagsins í kaffi og kökur í Flugsafni Íslands 9 apríl sem er annar í páskum frá klukkan 15 til 17. Endilega takið þennan tíma frá og komum saman og minnumst þessara merku tímamóta. Látið þetta berast til allra sem hafa átt þátt í starfi félagsins í gegnum þennan sögulega tíma.

 Bestu kveðjur Sigtryggur Sigtryggsson formaður SFA.

 
Svifflugur á Íslandi 1936 - 2012
Skrifað af Administrator   
föstudagur, 30 mars 2012

Á einhver mynd af svifflugu sem SFA átti árið 1976 TF-SBG af gerðinni Spatz 55. Ef einhver hefur grun um mynd af gripnum þá endilega sendið póst á svifflug hjá gmail.com. 
Leifur Magnússon er að taka saman heildaryfirlit yfir allar 77 renni og svifflugur sem komið hafa til landsins og þetta er eina svifflugan sem ekki hefur tekist að finna mynd af ennþá !

 
Saga Melgerðismela
Skrifað af Administrator   
fimmtudagur, 15 mars 2012

Myndasýning um sögu Melgerðismela á Akureyrarflugvelli í kvöld.

Hörður Geirsson ætlar að fjalla þar um sögu Melgerðismela í máli og myndum. 

Merkileg saga sem spannar tímabil frá því í seinna stríði. Viðburðurinn hefst kl 20:00 í skýli 7 (skýlinu hans Arngríms sem áður var Flugsafnið).

Allir velkomnir og vonandi mæta sem flestir.

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 15 mars 2012 )
 
Opinn fundur næsta laugardag
Skrifað af Administrator   
fimmtudagur, 23 febrúar 2012
Laugardaginn 25 febrúar kl 16 verður haldinn opinn fundur í Grásteini á Akureyrarflugvelli.
 
Umræðuefnin eru hvert félagið á að stefna í vélarkaupum og hvað skuli gera að tilefni 75 ára félagsins í sumar.
 
Allir velkomnir.  
 
Tillaga að hefð: 1.miðvd í mán kl 12 á Bláu könnunni
Skrifað af Jón Magnússon   
þriðjudagur, 31 janúar 2012

Stundum hefur verið talað um að koma upp einhverri hefð þ.a. við SFA félagar myndum hittast á kaffihúsi í hádeginu ákveðna daga. Hjá SFÍ er löng hefð fyrir slíku.  Nú höfum við Zippó báðir skipt um vinnu og eru vinnustaðir okkar  beggja í miðbæ Akureyrar. Við ætlum frá  og með morgundeginum að hittast kl 12 á Bláu könnunni fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. Við hvetjum aðra svifflugáhugamenn til að gera slíkt hið sama og  ef vel tekst til verður þetta með tímanum hefð.  Ég sendi sms á morgun fyrir hádegi. -Jón Magg-

Aukafróðleikur: Þess má geta að fyrsta rennifluga félagsins var smíðuð ca 1938 á trésmíðaverkstæði undir Bláu könnunni þar sem nú er Græni hatturinn. Í þessu húsi voru einnig smíðaðir amk tveir svifflugfélagar, ég og Addi Gumm og etv fleiri félagsmenn því á efri hæðum hússins voru ungu fólki leigðar ódýrar íbúðir á árum áður.

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 31 janúar 2012 )
 
Félagsfundur næsta mánudag
Skrifað af Administrator   
laugardagur, 28 janúar 2012
Kæru félagar 
 
Fyrsti almenni félagsfundur ársins 2012 verður haldinn í húsi Landsvirkjunar, Glerárgötu 30 gengið inn bakatil á mánudaginn 30 janúar klukkan 17. 
Á dagskrá er að ákveða hvort eigi að taka tilboði Sjóvá um kaup á TF-SBT en vélin er tryggð hjá Sjóvá og þeir hafa lagt fram tilboð um að vélin verði greidd út.
 
Aðrir liðir á dagskrá eru:
Svifflugfélagið er 75 ára í apríl, hvað ætlum við að gera að því tilefni ?
Hverslags sviffluga myndi best henta félaginu í framtíðinni í stað TF-SBT ?
Hvenær á aðalfundur félagsins að fara fram ?
Hverjir bjóða sig fram í embætti á næsta aðalfundi ?  
 
Reiknað er með að fundurinn sé frá kl 17 til að mesta lagi 19.
 
Athugið að formaðurinn Sigtryggur er kominn með nýtt símanúmer 821-3278 og netfangið er sem áður Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það  
 
TF-SBT Skemmd
Skrifað af Administrator   
þriðjudagur, 20 september 2011

Á sunnudaginn 18 september var TF-SBT lent all harkalega á Akureyrarflugvelli og er skrokkurinn nokkuð illa sprunginn í kringum nef og stélhjól auk þess sem fleyri skemmdir sjást víða á vélinni. Ljóst er að þetta mál verður að fara í gegnum tryggingarfélagið og þar til niðurstaða úr þeim viðræðum liggja fyrir er lítið hægt að spá í framhaldið. Blessunalega var flugmanninum EB. ekki meint af.

 
Ókyrrð í Eyjafirði
Skrifað af Administrator   
mánudagur, 29 ágúst 2011

Sunnudagurinn var svakalegur í loftinu fyrir ofan Eyjafjörð í dag. Nokkur flug voru flogin á TF-SBT og gekk það mjög vel samtals flognir fjórir tímar.

Svakaleg ókyrrð var í lofti og mikið uppstreymi og jafnframt niðurstreymi á köflum. Ég (Sigtryggur) og Þórir félagi minn vorum meðal annars í skýjabotnum í 4000 fetum og vorum við að hækka okkur upp í ský. Þá ákvað ég að keyra vélina fram á 160 kílómetra hraða en það voru enn 2 metrar upp á sekóndu og fyrst hámarkshraði er 170 km í ókyrru lofti þá ákvað ég að taka út fullar bremsur og þá loks náði ég að halda hæð undir skýjum á 150 kílómetra hraða. Það endaði með því að við fórum að leita að niðurstreymi til að halda okkur undir skýjum !

Helgin fór að mestu í að aðstoða félaga okkar frá SFFÍ vegna vélarbilunar á TF-SAA og af því er að frétta að vélin er orðin flughæf og verður flogið suður á morgun.

Síðast uppfært ( mánudagur, 29 ágúst 2011 )
 
TF-SBT er komin heim eftir velheppnaða heimsókn á Sandskeið
Skrifað af Administrator   
laugardagur, 20 ágúst 2011

Jón Magg og Sigtryggur flugu TF-SBT frá Sandskeiði til Akureyrar í dag og gekk flugið mjög vel. Skýjahæðin hefði mátt vera meiri en félagarnir gerðu gott úr þessu og náðu að sviffljúga drjúgan spöl af leiðinni. Við verðum bara að þakka félögum okkar í SFFÍ fyrir góðar móttökur á Sandskeiði hjartanlega til hamingju með 75 ára afmælið. Næstu daga er spáð austanátt hér fyrir norðan og viðbúið að formannsbylgjan sem liggur endilangt frá Akureyri og norður á Ólafsfjörð verði yfir firðinum og því upplagt að bregða sér í flug á TF-SBT.

Langjökull og Hvítárvatn

Hér eru nokkrar myndir frá heimsókn okkar og fluginu heim til Akureyrar.

Svifflugfélag Akureyrar á afmæli Svifflugfélags Íslands og ferðin heim.
Síðast uppfært ( sunnudagur, 21 ágúst 2011 )
 
TF-SBT enn fyrir sunnan
Skrifað af Administrator   
þriðjudagur, 16 ágúst 2011

Vegna þess að lágskýjað hefur verið norðanlands hefur ekki verið hægt að fljúga TF-SBT norður ennþá en svifflugan er í góðum höndum félaga okkar hjá SFFÍ á Sandskeiði. Þeir sem vilja fljúga fyrir sunnan meiga það ef þeir hafa tékk og samþykki formanns SFA. Hægt er að panta tékkflug í félagssímann 821-1331 eða Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .

TF-SBT á afmæli SFFÍ síðasta laugardag

TF-SBT, þarna eru Sigtryggur og Snæbjörn, mynd af vefnum www.svif.is myndina tók Kristján A. Jakobsson

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 17 ágúst 2011 )
 
TF-SBT á Sandskeiði
Skrifað af Administrator   
sunnudagur, 14 ágúst 2011

Það hefur gengið vel með TF-SBT á Sandskeiði síðustu viku og mikið hefur verið flogið. Búið er að tékka 4 flugmenn út á vélina á mótor og verið að kenna þremur núna. Vélin verður á Sandskeiði alla þessa viku og vonandi næst að fljúga henni norður um næstu helgi. Í norðanáttinni í dag voru bylgur yfir suðurlandi og flogið yfir Þingvallarvatn og víðar í allt að 8000 fetum og það lítur út fyrir svipað veður næstu daga. 

Vélin verður í örfáa daga lengur á Sandskeiði og þeir sem vilja fljúga skulu hafa samband við félagssímann 821-1331 og bóka flug.

TF-SBT í Reykjavík

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 17 ágúst 2011 )
 
75 Ára afmæli á Sandskeiði
Skrifað af Administrator   
þriðjudagur, 09 ágúst 2011

Ákveðið hefur verið að halda upp á 75 ára afmæli Svifflugfélags Íslands laugardaginn 13. ágúst n.k. á Sandskeiði. Dagskráin hefst kl. 14.00 og verður m. a. afhjúpað minnismerki um aðalhvatamann að stofnun félagsins og fyrsta formanninn Agnar Kofoed-Hansen. Þá verða kaffiveitingar og ýmis flugatriði ef veður leyfir.

Félagsmenn Svifflugfélags Akureyrar og aðrir velunnarar SFFÍ eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta og eiga góðan dag með þessum góðu félögum.

SFA er á staðnum alla þessa viku með TF-SBT og velkomið að fá flug á vélina.

 
Svifflugfélag Akureyrar á Sandskeiði
Skrifað af Administrator   
mánudagur, 08 ágúst 2011

Tvísæta félagsins er komin á Sandskeið og við erum klárir í að taka á móti þeim sem vilja flug. Hafið samband í félagssímann 821-1331 eða á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Á leið frá Akureyri til Sandskeiðs

Fleyri myndir hér

Svifflug Akureyri - Sandskeið

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 09 ágúst 2011 )
 
Svifflugfélag Akureyrar - leiðangur á Sandskeið
Skrifað af Sigtryggur - Zippo   
fimmtudagur, 04 ágúst 2011

Sælir félagar í fluginu.


Svifflugfélag Akureyrar ætlar að sækja Svifflugfélag Íslands heim í tilefni 75 ára afmælist SFFÍ og vera með þeim á þessum skemmtilegu tímamótum sem verður haldið upp á 13 ágúst næstkomandi á Sandskeiði.
Við ætlum að hafa með okkur tvísætu félagsins TF-SBT sem er af gerðinni Grob Twin III SL sem er eina Self Launching (SL) sviffluga landsins. Að vísu hefur SFFÍ TF-SAA en hún flokkast undir Touring Motorglider (TMG), þriðja tegundin af mótorsvifflugum eru svokallaðar sustainer svifflugur (Turbo) sem hafa lítinn mótor sem hjálpar mönnum að komast heim ef þörf er á en vél SFFÍ TF-SAS er þeirrar gerðar þannig að á Íslandi í dag eru til allar tegundir af svifflugum.

Svifflugan TF-SBT hefur ágætis flugeiginleika er með rennigildi 1:38 og gott hraðasvið. Þar sem hún getur tekið sjálf í loftið frá 600 metra braut þá hentar hún sérstaklega vel til yfirlandsflugs þar sem menn hafa möguleika á að hafa viðkomu á stöðum á leiðinni og taka aftur í loftið og það er einfalt að setja mótorinn út og byrja að klifra á ný ef að uppstreymið lætur á sér standa. 
Vélin hefur skiptiskrúfu með tveimur stillingum klifur og cruise og á cruise er hægt að fljúga henni á 140 km hraða milli staða á 70% afli.
Í flugtaki klifrar vélin 2.5 metra á sekóndu með einn innanborðs og 1.5 metra með tvo.


TF-SBT


Ætlun SFA koma með sviffluguna og kynna eiginleika hennar og hugsunina á bak við þessa tegund af svifflugum ef að nægilegur áhugi er hjá sunnanmönnum á þessu framtaki. Við munum bjóða upp á prufuflug og úttékkanir og verður vélin ásamt kennara á Sandskeiði frá ca 8 til 15 ágúst.  

Okkur vantar fleiri flugmenn á vélina þannig að við viljum gjarnan að sem flestir taki tékk, ætla má að svifflugmenn þurfi um 2-3 skipti 2 tíma í senn með lendingum og vinnslu á mótor inn-út til að taka tékk á vélina.
Athugið að von er á nýjum reglugerðum frá Evrópusambandinu sem verða innleiddar hér á næsta eða þarnæsta ári sem munu hafa áhrif á hvernig Self-Launch prófanir fara fram og verður það þá ekki lengur einungis í höndum svifflugfélaganna þannig að það er betra að ná sér í réttindin fyrr en seinna.

Vélflugmenn ættu að geta náð tékk á vélina með um það bil 15 mótorræsingum en þeir þurfa þá að sækja um skirteini svifflugmanns til að fljúga henni einir og ættu því einnig að taka flug hjá kennurum SFFÍ á hefðbundna svifflugu til að klára pakkann, í boði er heildarpakki upp á 100.000 krónur fyrir 15 ræsingar.
 
Kynning á vélinni verður haldin í Harðarskála á Sandskeiði á sjálfan afmælisdag SFFÍ miðvikudagskvöldið 10 ágúst frá klukkan 21-23 og allir eru velkomnir.
 
Þeir sem hafa tékk á vélina og eru með gild svifflugskirteini og nýlega flugreynslu geta fengið hana leigða frá SFA frá Akureyrarflugvelli öll sumur frá í byrjun maí til loka september að öllu jöfnu en ef menn hafa ekki flogið nýlega eru þeir tékkaðir út hverju sinni eins og eðlilegt telst. Ef menn vilja flug með kennara þá er það mögulegt flesta daga hvort sem er í útsýnis eða kennsluflug.
 
Við hvetjum alla áhugasama sem vilja prófa eða taka tékk til að svara þessum pósti þannig að við vitum eitthvað um hverjir hafa hug á að fljúga gripnum og við erum þegar farnir að taka niður bókanir á vélina.

Handbækur vélarinnar eru aðgengilegar hér: http://www.svifflug.is/joomla/index.php?option=com_content&task=view&id=18&Itemid=25 og er skylda að hafa lesið flight manual fyrir einflug á vélinni. 
Einnig er mjög góður leiðarvísir um Self launch svifflug hér http://asa.thixo.com/Guide_downloads.cfm
Hér er uppáhalds grein mín um flug á self launch svifflugu sem sýnir hvers lags möguleika svona gripir geta gefið http://www.dg-flugzeugbau.de/travels-dg400-e.html
 
Hægt er að fá upplýsingar á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og í félagssímanum 821-1331, einnig verða upplýsingar settar upp á vef félagsins www.svifflug.is og kennari félagsins verður á Sandskeiði alla vikuna og tilbúinn að svara fyrirspurnum.
 
Verðskrá félagsins er á http://www.svifflug.is/joomla/index.php?option=com_content&task=view&id=22&Itemid=27

Við leggjum áheyrslu á að nota mótor svifflugunar aðallega til að taka á loft og að svifið sé sem mest fyrir sem fæstar mótoreiningar, nokkur flug sumarsins hafa tekist einstaklega vel til dæmis:

Flug 11 júlí Akureyri - Eyjafjarðarbotn - Grenivík - Akureyri, 14 mótoreiningar, heildarflug 3:20, kostnaður 19.900.
Flug 2 júlí Akureyri - Húsavík - Kaldbakur 12.000+ feta bylgja - Akureyri 45 mótoreiningar, heildarflug 2:18 kostnaður 19.140.
Flug 31 júlí Akureyri 11.000 feta bylgja - Dalvík - Melgerðismelar - Akureyri 14 mótoreiningar, heildarflug 2:25, kostnaður 15.800.-

Miðað við flugtíma og tvo menn um borð verður að teljast að svona upplifun er ekki að kosta mikla peninga !

Reikna má með því að kennslutékkur á sviffluguna fyrir svifflugmenn samanstandi af 2-3 skiptum og 1-2 tima í senn og mun úttékkun kosta á bilinu 30-40 þúsund og ofan á það bætist við 15.000 króna úttékkunargjald.  Dæmigert tékkflug samanstendur af flugtaki með mótor, innsetningu á mótor, útsetningu á mótor á flugi og klifur, innsetning á mótor og svifi niður að velli. Í lokin eru neyðarviðbrögð æfð svo sem útsetning á mótori í aðflugi að braut ofl. Áður en flugmenn fá að fljúga vélinni sóló þá eru þeir prófaðir út í öllum helstu aðgerðum og er ætlast til þess að þær séu framkvæmdar af öryggi.
Aðalkennari verður Sigtryggur Sigtryggsson sem hefur flogið svifflugunni yfir 200 tíma og þekkir eiginleika hennar mjög vel og einnig er líklegt að kafteinn Gylfi Magnússon sjái um kennslu.

Svifflugfélag Akureyrar bíður upp á sveigjanlega greiðslumöguleika fyrir þá sem vilja td. er hægt að skipta kostnaði niður með föstum mánaðargreiðslum.

Ég óska Svifflugfélagi Íslands til hamingju með 75 árin og hlakka til að taka þátt í afmælis hátíðinni og sjáumst vonandi sem flest á Sandskeiði í næstu viku. 

Nú vil ég biðja þá sem hafa áhuga á að prófa og vonandi taka tékk um að svara þessum pósti þar sem ef ekki er nægur áhugi þá mun ekki verða af þessu litla ævintýri okkar. 
Þeir sem hafa aðstöðu til eru beðnir um að prenta þennan póst út og hengja upp á þeim stöðum sem flugáhugamenn koma saman á td. á Flugsafninu og hjá flugklúbbum.

Með flugkveðju. 

Sigtryggur Sigtryggsson
Formaður Svifflugfélags Akureyrar
Sími 898-0135
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 04 ágúst 2011 )
 
Mikið flogið í góðviðrinu á laugardaginn
Skrifað af Administrator   
sunnudagur, 10 júlí 2011
Laugardaginn 10 júlí var talsvert flogið á melgerðismelum í góðum skilirðum, við ætlum að halda áfram á sunnudaginn og fljúga sem mest og það eru kennarar til reiðu alla næstu viku, bara að bóka flug !  Félagssíminn er 8211331
Síðast uppfært ( sunnudagur, 10 júlí 2011 )
 
Aðalfundur Svifflugfélags Akureyrar 2011
Skrifað af Administrator   
sunnudagur, 03 júlí 2011

Aðalfundur verður haldinn í Grásteini miðvikudaginn 6 júlí klukkan 20.

Dagskrá fundarins eri venjuleg aðalfundarstörf og umræða um framtíð félagsins.

 
12000 feta flug í dag
Skrifað af Administrator   
laugardagur, 02 júlí 2011

Sigtryggur fór í svifflug í dag á TF-SBT norður að Kaldbak og í Flateyjardal og Fjörður. Fór í loftið klukan 16 frekar seint en náði þó að hitta á tímabil þegar bylgjur voru að myndast í fjörðunum.  Sterk suð austanátt var í lofti 30 metrar á sek sem mynduðu góðar bylgjur og við Kaldbak hætti ég að hækka mig eftir 12.000 fet enda súrefnið farið að minnka í þessari hæð.

Meiri upplýsingar á Facebook síðu félagsins http://www.facebook.com/group.php?gid=76512643321

Fjörður, Hrísey í fjarska.

Síðast uppfært ( mánudagur, 11 júlí 2011 )
Lesa meira...
 

Innskráðir notendur

© 2012 Svifflugfélag Akureyrar
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.