|
Sælir félagar í fluginu. Svifflugfélag Akureyrar ætlar að sækja Svifflugfélag Íslands heim í tilefni 75 ára afmælist SFFÍ og vera með þeim á þessum skemmtilegu tímamótum sem verður haldið upp á 13 ágúst næstkomandi á Sandskeiði. Við ætlum að hafa með okkur tvísætu félagsins TF-SBT sem er af gerðinni Grob Twin III SL sem er eina Self Launching (SL) sviffluga landsins. Að vísu hefur SFFÍ TF-SAA en hún flokkast undir Touring Motorglider (TMG), þriðja tegundin af mótorsvifflugum eru svokallaðar sustainer svifflugur (Turbo) sem hafa lítinn mótor sem hjálpar mönnum að komast heim ef þörf er á en vél SFFÍ TF-SAS er þeirrar gerðar þannig að á Íslandi í dag eru til allar tegundir af svifflugum.
Svifflugan TF-SBT hefur ágætis flugeiginleika er með rennigildi 1:38 og gott hraðasvið. Þar sem hún getur tekið sjálf í loftið frá 600 metra braut þá hentar hún sérstaklega vel til yfirlandsflugs þar sem menn hafa möguleika á að hafa viðkomu á stöðum á leiðinni og taka aftur í loftið og það er einfalt að setja mótorinn út og byrja að klifra á ný ef að uppstreymið lætur á sér standa. Vélin hefur skiptiskrúfu með tveimur stillingum klifur og cruise og á cruise er hægt að fljúga henni á 140 km hraða milli staða á 70% afli.
Í flugtaki klifrar vélin 2.5 metra á sekóndu með einn innanborðs og 1.5 metra með tvo.
Ætlun SFA koma með sviffluguna og kynna eiginleika hennar og hugsunina á bak við þessa tegund af svifflugum ef að nægilegur áhugi er hjá sunnanmönnum á þessu framtaki. Við munum bjóða upp á prufuflug og úttékkanir og verður vélin ásamt kennara á Sandskeiði frá ca 8 til 15 ágúst.
Okkur vantar fleiri flugmenn á vélina þannig að við viljum gjarnan að sem flestir taki tékk, ætla má að svifflugmenn þurfi um 2-3 skipti 2 tíma í senn með lendingum og vinnslu á mótor inn-út til að taka tékk á vélina.
Athugið að von er á nýjum reglugerðum frá Evrópusambandinu sem verða innleiddar hér á næsta eða þarnæsta ári sem munu hafa áhrif á hvernig Self-Launch prófanir fara fram og verður það þá ekki lengur einungis í höndum svifflugfélaganna þannig að það er betra að ná sér í réttindin fyrr en seinna.
Vélflugmenn ættu að geta náð tékk á vélina með um það bil 15 mótorræsingum en þeir þurfa þá að sækja um skirteini svifflugmanns til að fljúga henni einir og ættu því einnig að taka flug hjá kennurum SFFÍ á hefðbundna svifflugu til að klára pakkann, í boði er heildarpakki upp á 100.000 krónur fyrir 15 ræsingar. Kynning á vélinni verður haldin í Harðarskála á Sandskeiði á sjálfan afmælisdag SFFÍ miðvikudagskvöldið 10 ágúst frá klukkan 21-23 og allir eru velkomnir. Þeir sem hafa tékk á vélina og eru með gild svifflugskirteini og nýlega flugreynslu geta fengið hana leigða frá SFA frá Akureyrarflugvelli öll sumur frá í byrjun maí til loka september að öllu jöfnu en ef menn hafa ekki flogið nýlega eru þeir tékkaðir út hverju sinni eins og eðlilegt telst. Ef menn vilja flug með kennara þá er það mögulegt flesta daga hvort sem er í útsýnis eða kennsluflug. Við hvetjum alla áhugasama sem vilja prófa eða taka tékk til að svara þessum pósti þannig að við vitum eitthvað um hverjir hafa hug á að fljúga gripnum og við erum þegar farnir að taka niður bókanir á vélina.
Handbækur vélarinnar eru aðgengilegar hér: http://www.svifflug.is/joomla/index.php?option=com_content&task=view&id=18&Itemid=25 og er skylda að hafa lesið flight manual fyrir einflug á vélinni. Einnig er mjög góður leiðarvísir um Self launch svifflug hér http://asa.thixo.com/Guide_downloads.cfm Hægt er að fá upplýsingar á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
og í félagssímanum 821-1331, einnig verða upplýsingar settar upp á vef félagsins www.svifflug.is og kennari félagsins verður á Sandskeiði alla vikuna og tilbúinn að svara fyrirspurnum. Verðskrá félagsins er á http://www.svifflug.is/joomla/index.php?option=com_content&task=view&id=22&Itemid=27
Við leggjum áheyrslu á að nota mótor svifflugunar aðallega til að taka á loft og að svifið sé sem mest fyrir sem fæstar mótoreiningar, nokkur flug sumarsins hafa tekist einstaklega vel til dæmis:
Flug 11 júlí Akureyri - Eyjafjarðarbotn - Grenivík - Akureyri, 14 mótoreiningar, heildarflug 3:20, kostnaður 19.900. Flug 2 júlí Akureyri - Húsavík - Kaldbakur 12.000+ feta bylgja - Akureyri 45 mótoreiningar, heildarflug 2:18 kostnaður 19.140. Flug 31 júlí Akureyri 11.000 feta bylgja - Dalvík - Melgerðismelar - Akureyri 14 mótoreiningar, heildarflug 2:25, kostnaður 15.800.-
Miðað við flugtíma og tvo menn um borð verður að teljast að svona upplifun er ekki að kosta mikla peninga !
Reikna má með því að kennslutékkur á sviffluguna fyrir svifflugmenn samanstandi af 2-3 skiptum og 1-2 tima í senn og mun úttékkun kosta á bilinu 30-40 þúsund og ofan á það bætist við 15.000 króna úttékkunargjald. Dæmigert tékkflug samanstendur af flugtaki með mótor, innsetningu á mótor, útsetningu á mótor á flugi og klifur, innsetning á mótor og svifi niður að velli. Í lokin eru neyðarviðbrögð æfð svo sem útsetning á mótori í aðflugi að braut ofl. Áður en flugmenn fá að fljúga vélinni sóló þá eru þeir prófaðir út í öllum helstu aðgerðum og er ætlast til þess að þær séu framkvæmdar af öryggi. Aðalkennari verður Sigtryggur Sigtryggsson sem hefur flogið svifflugunni yfir 200 tíma og þekkir eiginleika hennar mjög vel og einnig er líklegt að kafteinn Gylfi Magnússon sjái um kennslu.
Svifflugfélag Akureyrar bíður upp á sveigjanlega greiðslumöguleika fyrir þá sem vilja td. er hægt að skipta kostnaði niður með föstum mánaðargreiðslum. Ég óska Svifflugfélagi Íslands til hamingju með 75 árin og hlakka til að taka þátt í afmælis hátíðinni og sjáumst vonandi sem flest á Sandskeiði í næstu viku.
Nú vil ég biðja þá sem hafa áhuga á að prófa og vonandi taka tékk um að svara þessum pósti þar sem ef ekki er nægur áhugi þá mun ekki verða af þessu litla ævintýri okkar.
Þeir sem hafa aðstöðu til eru beðnir um að prenta þennan póst út og hengja upp á þeim stöðum sem flugáhugamenn koma saman á td. á Flugsafninu og hjá flugklúbbum. Með flugkveðju.
Sigtryggur Sigtryggsson Formaður Svifflugfélags Akureyrar
Sími 898-0135
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|