|
Fréttir 2008 9.06.2008 - Íslandsmót í Svifflugi 2008 Íslandsmótið verður sett á Hellu kl.10:00 þann 5 júlí.Þátttökugjald er kr.10.000,- Umsóknum um þátttöku er veitt viðtaka í eftirfarandi netföngum: holmgeir@vortex.is ; thoriri@internet.is Með umsóknum skal fylgja: gildistími skírteinis og númer. Gildistími fluglæknisvottorðs. Hvaða sviffluga verði notuð, ekki skilyrði. e.u. Svifflugdeildar Fm Í. Þórir Indriðason ritari 6.06.2008 - Myndir frá Mývatni Hér er video mynd frá fluginu til Mývatns í síðustu viku4.06.2008 - Bylgjur Feðgarnir Björn og Einar náðu góðu bylgjuflugi í dag, upp í 12.000 fet og hefðu þeir getað farið miklu hærra en þeir voru ekki með súrefni með sér þannig að þeir máttu ekki fara hærra. Frábært uppstreymi hefur verið undanfarið og TF-SBT hefur sannað sig vel í að prófa ný svæði þar sem við vissum ekki áður að uppstreymi væri .3.06.2008 - Upp Upp mín ást Sigtryggur og BJörn fóru í flug í dag og skilyrðin voru frábær, við fórum frá Akureyri til Dalvíkur, þaðan norður og inn í Öxnadal og síðan yfir Moldhaugnarháls og upp, upp Hlíðarfjall, þaðan suður með Súlum, Kerlingu, Finnastaðardal, Skjóldal, Djúpadal. Og svo norður aftur, allt á einum og hálfum löngum matartíma og notuðum bara 3 lítra af bensíni :)31.05.2008 - Sagan samansett Því miður þurfti að aflýsa æfingu laugardagsins vegna rigningar en þess í stað settum við saman part af sögu félagsins Schweizer TG-3A TF-SBA sem síðast var flogið 1998 ef ég man rétt en þetta er fyrsta tveggja sæta kennsluvél félagsins. svifflugan gerði félaginu kleift að kenna nemendum á flugi þannig að kennarinn flaug með sem verður að teljast bylting frá því að þurfa að senda nemendur sín fyrstu flug eina ! Þess má geta að TF-SBA er fyrsta af fjórum kennsluvélum félagsins en sú nýjasta sem er Grob Twin III SL TF-SBT bættist við flotan vorið 2007.
TF-SBA Schweizer TG-3A er glæsileg sviffluga og Svifflugfélagið er stolt af því að sýna hana á Flugsafni Akureyrar verið velkomin á safnið, þar er margt að sjá ! 31.05.2008 - Rigning ! Vegna rigningar þá frestast æfingin eitthvað í dag. En við ætlum að hittast á flugsafninu klukkan 13 og setja saman Schweitzer Tg-3a svifflugu félagsins. Ef veður skánar þá verður farið að fljúga.28.05.2008 - Akureyri - Mývatn Í dag fóru Sigtryggur Sigtryggsson og Einar Björnsson á TF-SBT frá Akureyri til Mývatns, lentu á Reykjarhlíðar flugvelli og tóku aftur á loft og lentu síðan aftur á Akureyri. Ferðin gekk ágætlega en samt sem áður vorum við í vandræðum með að setja mótor inn og út. Strax voru gerðar leiðréttingar á stillingum þannig að mótorinn fer strax inn en mótorin fer ekki rétt út jafnóðum vegna þess að vökvatjakkar sem hjálpa til við að lyfta mótornum eru greinilega út úr slitnir og þarf að skipta um þá. Nú þegar hafa nýjir tjakkar verið pantaðir og verða komnir innan nokkurra daga. Á meðan er TF-SBT einungis nothæf á mótor í flugtaki, ekki er leyfilegt að taka mótor út á flugi.27.05.2008 - Æfingar hefjast 31 maí á Melgerðismelum Nú er æfingardagskrá sumarsins að hefjast og verður kennt að minnsta kosti á laugardögum fram á sumarið eftir því hver eftirspurnin er. Fyrsta æfingin hefst á Melgerðismelum og bjóðum við upp á kennslu og kynningarflug frá kl 13 og frameftir degi.27.05.2008 - Vinningshafi í spurningarkeppni SFA Síðasta haust heimsótti Verkmenntaskóli Akureyrar okkur á Melgerðismelum og voru að kynna sér starfsemina. Að þessu tilefni var efnt til lítillar spurningarkeppni og verðlaunin eru kynningarflug með spilstarti hjá félaginu. Nú hefur verið dreginn út vinningshafinn og hann heitir Hans Friðrik, til hamingju með það Hans.14.05.2008 - Aðalfundur SFA í kvöld kl 20 Aðalfundur Svifflugfélags Akureyrar verður haldinn í skýli 7 (Skýli Arngríms, Gamla Flugsafninu) klukkan 20:00.14.05.2008 - Flug & bjórkvöld á föstudag 16 Maí niður á Marína (gamli Oddvitinn) kl 21:00 Félagar í VFA. SVFA. FMFA. Flugskólinn og aðrir flugáhugamenn mjög svo velkomnir. Óformlegar umræður um Flugdag á Akureyri 21 júní, Flugmódeldagurinn á Melgerðismelum 9 Ágúst, Melarnir í stand fyrir grand og aðrir flugviðburðir í sumar. Flughermir á breiðtjaldi og fl.Meginn tilgangur kvöldsins er að styrkja tengslin á milli félagana. 08.05.2008 - Vinnudagur í Hyrnu í dag Enn standa framkvæmdir í Hyrnu yfir og verður vinnukvöld í kvöld frá kl 20 og síðan báða dagana þessa helgi. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.30.04.2008 - Vinnudagur 3 maí á Melunum Á laugardaginn verður skýlið tæmt frá klukkan 12 til 15 og einnig verður unnið að framkvæmdum í aðstöðu flugmanna Hyrnu þá helgi. Við þurfum á sem flestum að halda til að hjálpa til við framkvæmdina, fjölmennum og eigum góðan dag á melunum.30.04.2008 - Aðalfundi frestað Sælir félagar, vegna tæknilegra vandamála verðum við að fresta aðalfundinum sem átti að vera í kvöld.21.04.2008 - Fræðsla Hér er bæklingur um notkun á svifflugum með flugtaksmótor sem gott er fyrir menn að kynna sér sem vilja fá tékk á SBT.Leiðbeiningarbækur fyrir flugmenn útgefnir af framleiðanda vélarinnar eru aðgengilegar hjá félaginu og fljótlega verður hægt að panta eintök af þeim en nú er hægt að fá eintök félagsins lánuð, hafið samband. 20.04.2008 - Flug frá Akureyrarvelli
Hörður Geirsson tók nokkrar góðar myndir af SBT á flugi yfir Akureyri í dag, hér er útkoman (smellið á myndina til að sjá allar myndirnar). Við þökkum Herði sérstaklega fyrir að leyfa okkur að birta myndirnar hér og ef einhvern vantar góðan ljósmyndara þá vitið þið hvert á að leita. 19.04.2008 - Aðalfundur Svifflugfélags Akureyrar Aðalfundur félagsins verður haldinn 30 apríl kl 20:00 í Grásteini á Akureyrarflugvelli, fundarboð eru á leiðinni í póstinum.19.04.2008 - Ástand SBT Í dag skiptum við um teygjur sem hafa það hlutverk að festa proppinn í réttri stöðu til að hægt sé að setja mótorinn inn í skrokkinn, einnig var stilltur rofinn sem skynjar rétta stöðu proppsins og eftir það er miklu auðveldara að koma mótornum inn eftir flugtak og svifflugan telst þá vera í fullkomnu ástandi. Við það að bæta er að við prófuðum að fylla á bensíntank 2 í vélinni (væng-tankurinn) sem við höfum aldrei notað áður og sá búnaður reyndist virka fullkomlega. Og því telst vélin fullhæf fyrir yfirlandsflug þegar það verður reynt fyrst.19.04.2008 - Sumarið er komið ?
Við erum byrjaðir að fljúga Bjarna Teit frá Akureyrarflugvelli og lögð er áheyrsla á að fljúga með þá sem hafa skirteini svifflugmanns og sérstaklega að fljúga með kennara félagsins þannig að sem flestir geti flogið og sem flestir geta kennt. Hafið samband í félagssímann 8211331 ef þið viljið flug. 06.04.2008 - TF-SBT Flýgur
Flaggskip félagsins var sett saman í dag eftir viðgerð og eftir prófanir á uppkeyrslu var ákveðið að reyna flugtak sem heppnaðist með ágætum. Fyrra flugið gekk fullkomlega en eitthvað var erfitt að koma mótornum niður í seinna fluginu en það er einungis stillingaratriði sem þarf að laga. Að öðru leiti virkaði SBT með ágætum og við getum vonandi loksins farið að nota hana á fullum krafti. TF-SBT Flughæf
SBT hefur nú verið viðgerð og er komin með endurbyggðan propp. Enn er eftir að klára að pússa viðgerðir á rispum á skrokkinum sem væri ágætt að fá sjálfboðaliða í. Um leið og veður skánar verður hún sett saman og gerðar prófanir og hugsanlega einhverjar stillingar og eftir það verður hún loksins tekin í fulla notkun. Námskeið 2008 Svifflugfélag Akureyrar bíður upp á kennslu í svifflugi í sumar ef næg þáttaka næst, þeir sem hafa áhuga skrái sig með því að senda póst á svifflug@gmail.com Nánari upplýsingar síðar.Twin III SL varahlutir tilbúnir Jæja búið er að endurbyggja proppinn á TF-SBT hjá framleiðandanum í Þýskalandi og er hann á leiðinni til landsins. Að sama skapi eru allir varahlutir sem þarf frá framleiðanda vélarinnar Grob einnig tilbúnir og á leiðinni. Búast má við að kostnaður verði um það bil 600.000 krónur sem má teljast vel sloppið skilst mér. Stefnt er að því að vélin verði tilbúin til þjónustu í apríl og þess vegna þurfum við að fara að undirbúa áframhaldandi þjálfun á vélina. Best færi að sem flestir sem ætli að fljúga vélinni fylgist náið með viðgerð vélarinnar til að kynnast eiginleikum hennar. Þeir sem hafa áhuga á að taka tékk sendi póst á svifflug@gmail.com.Hlutir sem menn þurfa að kunna fyrir sóló á vélina eru: - Virkni mótors - Virkni upp og niðursetningar búnaðar mótors - Flugeiginleikar vélarinnar í lofti - Sérstök áheyrsla á lendingar en auðvelt er að lenda vélinni ef menn kunna það en auðvelt að klúðra því ef menn fara ekki rétt að (það sama á við aðrar vélar en TF-SBT fyrirgefur ekki jafn vel og aðrar vegna aukins hraða í lendingu og því öllum hollt að rifja vel upp góða aðferðarfræði í lendingum - Agi við ákvörðunartöku um ræsingu mótors á lofti, hvort á að lenda eða reyna start í lofti, mjög mikilvægt þar sem alltaf þarf að gera ráð fyrir því að ekki takist að ræsa mótor á ný. - Radio tjáskipti - Nú höfum við svifflugmenn ekki jafn mikla reynslu og vélflugmenn í samskiptum í gegnum talstöðvar og því mikilvægt að rifja þá fræði upp fyrir alla. - Viðbrögð við óvæntum atburðum, eldi í mótor, mótor fer ekki upp, fer ekki niður, drepst ekki á honum, ekki hægt a stöðva snúning propps, ekki hægt að starta Þetta er einungis hluti þess sem við þurfum allir að kunna sem viljum fljúga vélinni sóló hafið það í huga að best er að byrja strax að kynna sér virkni vélarinnar ef þið ætlið að fljúga henni í sumar. Kærar kveðjur Sigtryggur Sigtryggsson. hver mér hugaðr á hlið standi annar þegn við óðræði. Þarf eg hans oft of hergjörum. Verð eg varfleygr er vinir þverra. Valdemar Jónsson látinn
Kær félagi okkar Valdemar Jónsson lést skömmu eftir áramótin. Hann verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 14. janúar klukkan 13:30. Valdemar hafði háð baráttu við sykursýki um nokkura ára skeið sem á endanum hafði yfirhöndina.
Myndir: Hilmar Friðjónsson |